Hvernig getum við almennir borgarar komið í veg fyrir hlýnun jarðar og útrýmingu á dýrum? Í fyrsta lagi þurfum við að upplýsa hvort annað. Upplýsingaflæði til almennings er mjög mikilvægt. Við þurfum að tala um hugsanlegar afleiðingar og koma þessum hlutum betur til skila. Fjölskyldur geta flokkað allt rusl á heimilinu og notað fjölnota poka þegar farið er út í búð. Plast tekur um það bil 1000 ár að eyðast og þar af leiðandi er allt plast sem hefur verið búið til ennþá til. Aðeins 9 prósent af plasti er endurnýtt og restinni af plastinu er þá hent út í náttúruna. Reynum að nota eins lítið plast og hægt er. Öll heimli geta líka notað umhverfisvænar perur eins og LED perur og muna að slökkva alltaf á ljósinu þegar ferið er að heiman. Almenningur getur líka gert margt til að stíga í réttu áttina að grænu samfélagi. Allir geta gert litla hluti eins og að passa upp á vatnsnotkun með því að taka styttri sturtur, taka upp rusl á götunni og hjólað og labbað í staðinn fyrir að keyra.
Stjórnvöld geta leikið gríðalega stórt hlutverk til að hjálpa landinu og heiminum okkar. Fjölgun á almennum samgöngum eins og rafmagnsknúnum neðanjarðarlestum og lægra verð í strætisvögnum gæti haft mikil áhrif á mengun jarðar. Stjórnvöld geta bætt við flokkunarstöðvum um allt land svo fólk flokki meira í stað fyrir að henda rusli í almennt sorp. Þau geta veitt stuðning til minni landbúnaðarframleiðanda sem leggja áherslu á náttúruvernd og sem fara vel með dýrin í stað fyrir risa landbúnaðarverksmiðjanna sem bera ábyrgð á 15-18 prósent af gróðurhúsaáhrifum. Stjórnvöld geta auglýst græna orku og verndað og endurheimt helstu vistkerfi. Ef við hjálpumst að og bætum okkur í sjálfsbærni getum við bjargað jörðinni. Við verðum samt að bæta okkur núna og gera allt sem við getum til að verða umhverfisvænni. Við eigum bjarta framtíð ef við grípum til aðgerða og breytum kerfinu sem við lifum í.
sHérna eru nokkrar slóðir þar sem hægt er að gefa framlag til að hjálpa annað hvort loftslagsbreytingum eða dýrategundum í útrýmingarhættu og vistsvæðum þeirra.
https://support.worldwildlife.org/site/SPageServer?pagename=main_onetime&s_src=AWE1907OQ18336A02939RX&_ga=2.230790559.1895466519.1558088879-1900741897.1558088879 - Alþjóðlegi náttúruverndarsjóðurinn eru alþjóðarsamtök sem vinna að rannsóknum, verndun og viðreisn umhverfis um allan heim.
https://membership.onlineaction.org/site/Donation2?df_id=18816&18816.donation=form1&addl_info=nav-button&conversion_pg=www.edf.org%2Fdonate-online&_ga=2.228382429.1114681768.1558089045-485791757.1558089045 - Environmental Defense Fund er stofnun sem berst gegn loftlagsbreytingum og eru ekki rekin í hagnaðarskyni.